Margt hefur gerst árið 2006, til dæmis þá dó þessi síða einmitt
2006. Samt sem áður hef ég ákveðið að birta hérna árslista yfir þá
hluti sem sköruðu frammúr 2006.
Busadólgur ársins
-Guðni
Þessi keppni var afar spennandi og úrslitin virtust ekki ætla að
ráðast fyrr en á síðustu dögunum. Team sóda hafði spilað fram sínum
allra sterkustu busadólgum á borð við Sigga, Óla, Drekanum og Aroni
en þeir virtust bara enganvegin hafa roð í sjálfann
fyrsta-a-busadólgs-meistarann. Þeir gerðu samt allir sitt besta og
fengu þónokkur busastig. Einnig var Mundi ofarlega á blaði en Guðni
er bara svo sannarlega allur busadólgurinn.
Busi ársins
-Teitur
Kemur sjálfsagt voða fáum á óvart. Þessi maður er einfaldlega mesti
snillingurinn. KingKong trailerinn var einfaldlega eitt það besta
sem ég hef á ævi minni séð. Bíð spenntur eftir myndinni
sjálfri.
http://youtube.com/watch?v=6qVTHXIlKmA
Busabekkur ársins
-Allir nema i og j
Já nokkuð augljóst að við
völdum verstu busabekkina. Þetta eru einu bekkirnir sem ekki héldu
party fyrir böðlabekkinn sinn. Held að ég hafi aldrei verið jafn
ósáttur. Fokkerar.
Bjór ársins
-Lager
Lagerinn kom sá og sigraði með yfirburðum. Hann er ekki bara
ótrúlega góður heldur kostar hann líka bara 160kr stykkið. Auk þess
fæst hann í 10bjóra kössum sem er virkilega hentugt.
Djammari ársins
-Treflarnir
Var enginn einn sem stóð uppúr held ég. Ákvað að enginn úr stjórn
djamMA myndi fá þennan titil vegna þess hversu feitt við beiluðum á
djamMAparty á fyrri önn. Treflarnir voru hinsvegar að standa sig á
árninu og eiga skilið þennan titil.
Kelling ársins
-Drekinn
"Strákar, ég held ég beili á djamminu
og fari til Birtu að horfa á cry baby"
VMAingur ársins
-Sveinn.
Eini VMAingurinn sem ég þekki eitthvað
af viti. Plús það að hann var að útskrifast úr vma nuna! jéé
rokkon.
Atvik ársins
-Sæþór og svalirnar
Maður gleymir þessu atviki seint. Ég hélt smá teiti hérna heima í
mars og einhverra hluta vegna mætti löggann á staðinn. Sæþór hafði
hitt hana í stigagangnum og logið að henni að partyið væri á 3. hæð
en ekki á 2.hæð þar sem ég á heima. Löggan áttaði sig fljótlega á
því hvar í blokkinni partyið væri, þar sem "hemmalagið" fór ekki
framhjá neinum í götunni, og bankaði hún fljótlega uppá. Siggi náði
einhvernvegin að sannfæra löggurnar um að það væri ekkert
party, bara smá kellingavesen og hann fékk þá til að fara með þeim
rökstuðningi að þeir væru sjálfsagt báðir giftir og vissu hvernig
þessar kellingar gætu hagað sér. Sirka 5min seinna kemur Sæþór allt
í einu veltandi inn um útidyrahurðina vælandi að um að bakið sé
komið í rúst. Þá hafði þetta verið þannig að hann hafi orðið frekar
hræddur eftir að hafa logið að löggunni og ákveðið að fela sig
fyrir henni þegar hún kæmi. Eini felustaðurinn sem hann fann var út
á svölum og hann ákvað að hanga fram af svölunum þangað til að
löggan myndi fara. Eftir að hún fór þá áttaði Sæþór sig á að hann
gat enganveginn híft sig upp aftur þannig hann varð bara að láta
sig detta niður 3.hæðir (2.hæðir og kjallari neðst). Fyrir
einhverra þvílíka lukku lenti hann á svölunum fyrir neðan og var
fastur þar þangað til konan sem á heima þar hleypti honum í gegnum
íbúðina sína.
Djamm ársins
-Búlgaría
Það er bara ekkert djamm sem toppar 2vikna fyllerí með bjórinn á
50kr og vodka ódýrari en mat. Auk þess var henntugt að geta alltaf
fengið sér McDonalds eftir djammið og blandað þannig kvöldmatnum og
morgunmatnum saman.
Setning ársins
-"two levas. just for you my friend"
Það
virtist allt kosta "two levas" í Búlgaríu. Nema bjórinn, hann
kostaði bara eina levu.
Versta hljómsveit ársins
-Rockstar: Supernova
Þorvaldur neyddi mig til að hlusta á nokkur lög af nýja disknum
þeirra og ég fann hvernig ég dó að innan á meðan.
Þáttur ársins
-Prison Break
Kemur sjálfsagt fáum á óvart en
þessi þáttur er bara einum of góður. Aðrir þættir sem komúst nálægt
því að vinna voru: My name is Earl, One tree hill og Heroes! allt
saman snilld.
Betlari ársins
-Siggi ves
Ef maður ætlaði á djammið þá varð
maður alltaf að taka auka pening með fyrir Sigga. Það klikkaði ekki
að hann var allt í einu búinn með allan peninginn sinn og komst
ekki inn í Sjallann nema maður lánaði honum.
Já btw, skuldar mér mikinn pening, brauðstangir og ást.
Mynd ársins

Ef maður skoðar þessa mynd mjög vel þá sér maður að Sæþór leggur
sig allan fram í hana og reynir að troða tungunni upp í
Drekann.
Sæþór, Dreki og rjómi...fullkomin blanda!
MAkomik ársins

Of satt og of gott.
Versti gaur ársins
-Mundi.
Já Mundi fékk þennan titil. Held að hann sé líka bara mjög stoltur
með það. Ég var einhverntíman að setja útá hann fyrir að vera
Busadólgur og þá fékk ég þessar tvær setningar frá honum "hey
every hole is a goal" og "Raggi, það er komið gras á völlinn
hjá þeim þannig þetta er í lagi". Of slæmur gaur.
Djammpleis ársins
-1929/capone.
Ég fílaði gamla Oddvitann í botn, fílaði enganveginn Rocco en fíla
1929/capone rosalega. Þetta fer greinilega svona upp og niður
einsog skapið í kellingunum.
Versta djammpleis ársins
-Kaffi Karólína.
Sama hvað ég reyni þá get ég
ekki fílað þennan stað. Það eru eiginlega svona óskráðar reglur að
þú þurfir að vera með trefil og í frakka til að komast þarna inn.
Svo væri mjög gott að maður gæti samið eitt ljóð yfir kaffibolla á
meðan maður er þarna inni, þá fær maður gúddvill frá staðnum.
Treflapleis. Þessi staður fær samt plús fyrir mest kynæsandi kokk
ársins, Árna Þór.
Ófyndnasti maður ársins
-Heiðar smári
Mig langar til að gráta þegar
hann reynir að segja eitthvað fyndið. Hann er eina ástæðan afhverju
ég kvíði fyrir að fara í pásu í vinnunni. Á það líka til að koma
tvisvar með sama ófyndna brandarann í sömu pásunni. Fokk.